Hagstæð leiðsögn frá laganema
-
Fræðandi útskýringar á sviði einkamálaréttar
Ertu með lagalegt álitamál en veist ekki hvar þú átt að byrja?
LagaHjálp veitir aðgengilega og skýra fræðslu á sviði einkaréttar með áherslu á mannlega túlkun á lögunum. Þjónustan byggir á opinberum heimildum og almennum lagasjónarmiðum og er ætluð til að veita einstaklingum betri skilning á eigin stöðu og næstu skrefum í málum er kunna að varða rétt þeirra.
Útskýringarnar ná m.a. til sviða á borð við skaðabótarétt, samningarétt, eignarétt og skattarétt einstaklinga. Þjónustan felur þó ekki í sér persónulega lögfræðiráðgjöf né mat á réttarstöðu einstakra mála, heldur er um almennar og fræðandi upplýsingar að ræða.
Fyrirspurn og framkvæmd
Ef óskað er eftir því að fá athugað hvort málefni falli innan ramma þjónustunnar er hægt að senda fyrirspurn í ,,Hafðu samband”.
Að greiðslu lokinni skal senda tölvupóst þar sem pöntunarnúmer kemur fram í efnislínu og megininntak málsins í texta. Svör eru veitt eins fljótt og unnt er.
Takmarkanir og skýrt umfang
Þjónustan tekur ekki til mála sem fela í sér flókin réttarvandamál, formlega skjalagerð, samskipti við stjórnvöld eða dómstóla, né heldur til félaga eða atvinnurekstrar. Hún kemur ekki í stað dýrrar ráðgjafar lögmanns og er ekki ætluð sem grundvöllur málsmeðferðar.
Ef óskað er eftir sértækri lögfræðiráðgjöf eða ef mál snertir ríka hagsmuni er notendum eindregið bent á að leita til lögmanns.
-
Mín áhersla
-
-
-
MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR
Eftir að greiðsla hefur átt sér stað verður þú að senda upplýsingar í ,,Hafðu samband”.
-
Heitið skal vera nafn þitt auk pöntunarnúmers og svo getur þú skrifað álitamálið í spurningardálkinn sjálfan.
-
Ég svara eins fljótt og auðið er.