Um mig
Ég er útskrifaður laganemi úr bachelors-námi í lögfræði, með fyrstu einkunn, og hef ætíð haft brennandi áhuga á því hvernig lögin snerta líf fólks, ekki aðeins fyrir dómstólum, heldur einnig í daglegum aðstæðum.
Í gegnum námið komst ég fljótt að því að margir upplifa lagaleg álitaefni sem bæði óskiljanleg og yfirþyrmandi. Þeir vita að þeir ættu að fá ráð, en vita jafnvel ekki hvar þeir eiga að byrja og þegar þeir leita aðstoðar mætir þeim oft kostnaður sem hentar illa fyrir hitt hefðbundna veski.
Þetta er vandamál sem mig langaði að leysa. Þess vegna býð ég upp á persónulega, aðgengilega og hagkvæma fræðslu um lagaleg málefni, þar sem markmiðið er skýrt: að hjálpa fólki að skilja rétt sinn á einfaldan og raunhæfan hátt.
Ég veiti ekki formlega lögmannsþjónustu, heldur fræðandi leiðsögn byggða á eigin lagalegri þekkingu og skýrri framsetningu.
Hvort sem þú ert að kljást við samningsmál, réttindi þín fyrir eða eftir tjón eða einfaldlega að fá betri yfirsýn yfir stöðuna þína er markmið mitt að gera lögin læsileg og aðstoðina persónulega. Því lögin eiga ekki að vera fráhrindandi, þau eiga að vera til aðstoðar.
Ég árétta að þjónustan sem slík er ekki til endanlegrar úrlausnar í málum, heldur aðeins til leiðbeiningar og fræðslu um hvernig skuli snúa sér og hvaða ráða skuli gripið til.